Leita í fréttum mbl.is

Rólegt yfir veiðum en mikið að gera á textavarpinu

Það er lítið að ske á síldarmiðunum hér við norsku línuna, erum komnir með 1050 tonn og erum núna að leita. Veðrið hefur verið sæmilegt en samt er búið að vera talsverður veltingur enda þungur sjór.

Eftir því hefur verið tekið hér um borð að Doddi og Bjarni eru alltaf á textavarpinu að ath og sýna öðrum hér í áhöfn hver staða þeirra liða er, en Doddi formaður Liverpool klúbbsins hér um borð er mjög ánægður með sína menn, enda í efsta sæti. Þá er Bjarni alltaf að ath hvort Aston Villa sé ekki ennþá í 5 sæti á milli Arsenal og Man Utd. Guðni Þór hefur ekki enn farið i Man Utd peysuna en Stebbi bauð honum að lána honum Everton könnuna á sunnudag en án árangurs.Flottur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

segðu nú strákunum að slaka á í textavarpinu, hér er rólegt yfir hlutum. beðið eftir sektarákvæði frá norsku gæsluni. megum ekki fara út fyrr en hún og samþykkt liggur fyrir.

kv Lanhelgisbrjótarnir á Guðmundi ve

Eddi Gjé (landhelgisbrjótur) (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 15:29

2 Smámynd: Guðni  Guðnason

tetta er einstaglega ljot peysa sem nafni er í á myndini

Guðni Guðnason, 28.10.2008 kl. 15:33

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ætli Guðni fari nokkuð í united-peysuna á þessari leiktíð?

Jóhann Elíasson, 29.10.2008 kl. 07:55

4 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Alveg sammála þetta er einstaklega ósmekkleg peysa, held að hann fari ekki mikið í hana í vetur.

Grétar Rögnvarsson, 29.10.2008 kl. 09:55

5 identicon

Þetta er náttúrulega ömurleg peysa en hann á Liverpool treyju líka ég hugsa að hann klæðist henni meira í vetur

Hlynur Ársælsson (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Kjartansson SU-111
Jón Kjartansson SU-111

Uppsjávarskip með 15 manns i áhöfn, en um borð 10 menn í hverri veiðiferð.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband