Leita í fréttum mbl.is

Kom að því...

...að ég setti svo sem eina færslu hér inn í þessum túrnum. Er þetta allt gert fyrir Sigurjón löndunarkall, segir hann að ég sé ekki nógu duglegur að blogga, það séu svo margir sem fylgjast með okkur á þessu bloggi og ég verði að vera duglegur. Tek ég þessi orð hans með fyrirvara þar sem allir þeir sem skoða þessa síðu (að hans sögn) skilja aldrei neitt eftir í athugasemdum, gaman væri ef svo margir fylgdust með okkur að einhverjir af þeim mörgu mundu kvitta kannski fyrir, ja kannski svona annað slagiðSmile

En þá að allt allt öðru, einn áhafnarmeðlimurinn hér um borð eignaðist afabarn í fyrradag, var þar á ferðinni lítill drengur sem leit dagsins ljós, óskum við afanum, ömmunni og að sjálfsögðu nýbökuðu foreldrum innilega til hamingju með litla prinsinn.

 Hreggviður afiHér er svo afinn, Hreggviður Friðbergsson, að flaka sér kolmunna til þerris, bragðast hann (þ.e.a.s. kolmunninn) mjög vel er búið er að þurrka hann.

Þá að fiskifréttum, erum við á okkar fjórða holi og hefur veiðin eitthvað dregist saman, er svo komið að búið er að pumpa einum 900 tonnum í lestar skipsins. Í einni dælingunni slæddist með einn fiskur er lítur svona út...

 Fagurserkur

 

 

 

 

 

 

 

 ...og er menn vorum búnir að kíkja í fiskabókina var niðurstaðan sú að hér væri á ferðinni Fagurserkur (lat; Beryx splendens, ens; alfonsino). Lifir hann á 25m og niður á 1300 metra dýpi og getur orðið 70cm langur, algengast 25-40cm.

Þar til næst.

Kv. Jón Kj.

SVH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skil eftir spor

Einar Þ (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 07:19

2 identicon

Bið að heilsa ykkur

Raggi (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 07:50

3 identicon

Góðan morgun nú,er vaknaður og búinn að lesa,þakka þér Sveinn

Stefán Þór (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 08:58

4 identicon

Kíki hingað reglulega þegar koma nýjir pistlar, alltaf gaman að frétta af ykkur

Sigurpáll (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 09:12

5 identicon

Húsvíkingurinn alltaf flottur.Takk fyrir mig

Sigurjón löndunarkall (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 10:01

6 identicon

fylgist með öðru hvoru. kvitt kvitt

kv. Alli Vell

vellarinn (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 19:27

7 identicon

Kem hérna reglulega og kíki. Það er rétt hjá Sigurjóni það eru margir sem lesa þetta.

Hlynur (IP-tala skráð) 29.4.2010 kl. 00:07

8 identicon

Sælir félagar... Já menn mættu vera duglegri við að kvitta, maður finnur fyrir tilgangsleysi yfir þessum bloggfærslum og hefur á tilfynningunni að enginn nenni að lesa. Ef þið rekist á svona óvenjulega fiska er rétt að kippa þeim með, td. er okkar kapteinn ánægður ef hann getur fært sjaldgæfa fiska heim á fiskidaginn mikla.

Börkur.... veitustjóri..... (IP-tala skráð) 29.4.2010 kl. 13:27

9 identicon

Já maður skoðar síðuna hjá ykkur til að fylgast með

Takk fyrir.

hannes (IP-tala skráð) 29.4.2010 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Kjartansson SU-111
Jón Kjartansson SU-111

Uppsjávarskip með 15 manns i áhöfn, en um borð 10 menn í hverri veiðiferð.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband