1.8.2008 | 19:56
Góður dagur í dag og verslunarmannahelgin framundan
Jæja þá eru menn búnir að jafna sig eftir þetta risa hol í gær, og farið að slaka á taugunum hjá mönnum hér um borð, en eftir það var komið að syninum sem að átti mjög góðan dag, hífði hann 500 tonn eftir snarpan sóknarleik. Var þá komið að okkar æðstu ráðamönnum hér um borð að láta trollið síga í hafið og tengjast traustar böndum við soninn, gekk það allt snurðulaust fyrir sig. Eftir að menn voru búnir að kýla vömbina út eftir hádegismatinn var ákveðið að kíkja í vörpuna og reyndust vera 450 tonn af góðri blöndu af makríl og síld og hafði makríllinn sigur úr bítum bæði úr fortalningu og aðaltalningu. Er þetta því búið að vera mjög gott hjá okkur feðgum það sem af er þessum túr.
Vegna þess að fríhelgi verslunarmanna er framundan bryddaði kokkurinn fram nýjungum hér um borð, en hún bakaði þessar dýrindis pizzur ofan í okkur úlfana og má nefna að sumir voru orðnir svo spenntir að þeir réðu ekki við sig og komu spangólandi að matarborðinu. Það er einmitt um þessa helgi sem að mest er að gera hjá verslunarmönnum og minnst er um fríið, kassinn bólgnar út af aurum úr vösum almúgans.
Birta tekur eina af mörgum pizzum út úr ofninum.
Var þessum pizzum gerð góð skil og er óhætt að segja að Birta hafi staðið sig mjög vel í þessum pizzubakstri og reyndar síðan hún kom hér um borð.
Gummi, Emil og Viktor á meltunni.
Svo viljum við minna á alla þá sem leggja land undir fót um þessa mestu ferðahelgi ársins að ganga vel um land og þjóð og ganga hægt um gleðinnar dyr svo allir komist nú heilir heim á ný.
Við óskum ykkur öllum góðrar helgar, til sjós og lands.
Kv. rauðhetta og úlfarnir
Eldri færslur
- Janúar 2012
- Janúar 2011
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Myndaalbúm
Tenglar
Önnur skip
- Aðalsteinn Jónsson SU
- Álsey VE
- Ásgrímur Haldórsson SF
- Birtingur
- Bjarni Ólafsson AK
- Börkur NK
- Faxi Re
- Guðmundur VE www.gudmundurve.net/blogg/
- Hákon EA
- Hoffell SU
- Huginn VE
- Ingunn AK 150
- Jóna Eðvalds SF
- Kap VE
- Lundey NS-14
- Margrét EA
- Sighvatur Bjarnason VE
- Þorsteinn ÞH360 www.blog.is/thorsteinnth
- Júpiter ÞH363 http://www.123.is/jubbinn.
Togarar
- Arnar HU1 www.123.is/arnarhu1
- Björgvin EA311 www.123.is/bjorgvinea
- Brimnes RE27 www.123.is/brimnes
- Guðmundur í Nesi RE13 www.gin.is
- Kleifaberg ÓF2 www.simnet.is/kleifaberg/
- Málmey SK1 www.hrappur.is/malmey/
- Vigri RE71 http://sjomenska.123.is/
- Örvar HU2 www.123.is/hu2.
Rannsóknarskip
- Árni Friðriksson RE200 www.123.is/arnif
Erlend skip
- Akamalik www.akamalik.mono.net/
- Christian i Grotinum
- Fagraberg FD
- Nordborg
- Skálaberg118 www.skalaberg118.dk/
- Sundaberg KG336 www.sundaberg.dk/
Aðrir áhugaverðir
- Grétar Rögnvarsson
- Guðmundur St Valdimarsson
- Hafþór Hreiðarsson www.123.is/skipamyndir
- Hilmar Snorrason
- Jón Páll Ásgeirsson
- 640 www.640.is
- Tobbi Villa
- Þorgeir Baldursson
Sveitarfélög
- Djúpivogur www.djupivogur.is
- Fjarðabyggð www.fjardabyggd.is
- Norðurþing www.nordurthing.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svidin hafa greinilega farid vel i Stebba Studbolta, og mer synist ad pizzan hafi farid vel i Viktor, gangi ykkur vel strakar minir synist that nu aldeilis gera that. Her er nog af pizzum og godu vedri.
Bestu kvedjur fra Italiu Gretar.
Grétar Rögnvarsson, 2.8.2008 kl. 09:38
allt gott að frétta af mér og mínum í hita og sól. Gott að það er einhver tilbreyting þá á bertri veginn fyrir þá stráklinga. Fíla að vera í fríi í Danaveldi og sitja úti í yfir 30 st9ga hita og sól með bjór í hendi á meðan þið púlið út á sjó. Sé ykkur eftir langan tíma. Sævar og Co.
Sævar (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 20:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.