Leita í fréttum mbl.is

Í landi.....

...með morgninum. Þá er þessi túr að enda kominn, höfum við fengið alveg fínasta veður á leiðinni og gengið vel. Lestarstjóri segir að ríflega 2000 tonn hafi runnið í lestarnar í þessum túrnum og þetta hafi verið eðal kolmunni sem hafi fengist, hafa sumir hér um borð verkað kolmunnann eins og harðfisk og borið þar með björg í bú, bragðast hann eins og besta sælgæti.

Mikil spenna ríkti hér á miðvikudagskvöld er Arsenal heimsótti Roma heim í Meistaradeildinni, ekki varð nú spennan minni er ljóst var að það færi í vítaspyrnukeppni. Var þetta hin besta skemmtun að horfa á og voru Arsenalaðdáendur hér kampakátir með sína menn eftir þessa æsi spennandi keppni.

Kv. Jón Kj.

SVH


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dunni

Flottur túr hjá ykkur.  Get ímyndað mér að eitt og eitt öskur hafi hrokkið upp úr barka karslsins ykkar undir leiknum. Svona inn á milli vanlíðunnar stunanna meðan á lieknum stóð.  En spennan var ósvikin það eitt er öruggt.

Hins vegar var þriðjudagsleikurinn allur annar, öruggari og betri. Það var gaman að leiða spánska nautið til slátrunnar á Anfield.  Bara bros allan leikinn.

Vonadi fáið þið fína helgi í landi ef ykkur verður ekki þvælt út strax á laugardag.

Dunni, 13.3.2009 kl. 06:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Kjartansson SU-111
Jón Kjartansson SU-111

Uppsjávarskip með 15 manns i áhöfn, en um borð 10 menn í hverri veiðiferð.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband