Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
29.3.2009 | 01:53
Vinnslan í fullum gangi...
...þrátt fyrir þrálátar brælur og lítið sem ekkert fiskirí. Erum við búnir að vera á miðunum síðan á þriðjudagsmorgun og einungis höfum við bleytt í trollinu tvisvar sinnum á þeim tíma og hafa brælur verið að setja strik í reikning, höfum við verið að krussa um svæðið í allan dag, austur,vestur, norður og niður og enginn kolmunni sést á öllum þessum tæknivæddu tölvuskjám sem prýða brúna, fyrir utan þessa fjóra kolmunna sem syntu þversum undir bátinn að framanverðu klukkan 15:47 að staðartíma.
Þrátt fyrir aflaleysi hefur vinnslan gengið vel og má segja að nær allur afli sem komið hefur um borð farið í vinnsluna. Eru sjálfsagt margir að hugsa núna með sér sem lesa þetta hvaða bölvaða rugl þetta sé í ritstjóra síðunnar, vera að tala um einhverja vinnslu þar sem þetta er nú gúanóbátur og fiskar einungis í bræðslu, en nei nei, höfum við ákveðið að nú skuli fullvinna kolmunnann um borð og það allt niður í neytendapakkningar. Standa menn hér og flaka á fullu, er kolmunninn svo verkaður með sérstakri aðferð sem við kjósum að segja ekki frá, og loks þurrkaður. Er hann er orðinn vel hertur þá er honum pakkað allt niður í 100gr. neytendapakkningar. Bragðast þessi afurð okkar eins og besta sælgæti og er lítið betra en að fá sér svo sem nokkra bita til að narta í fyrir framan sjónvarpið. Er ætlunin að koma inn á harðfiskmarkaðinn með krafti og bjóða hertan kolmunna á verði sem ekki hefur sést áður í búðum, sem sagt algjört kreppuverð.
Hér sést Stéfán vera að hengja upp flökin og vildi hann koma því á framfæri að mikil not væru í grillinu sem þarna sést undir segli, gat hann notað það sem vinnuborð rétt á meðan var verið að hengja upp fiskinn.
Hér má svo líta á afurðirnar á ýmsum stigum ferilsins, ný búið að hengja upp og annað bíður eftir að verði pakkað.
Ef menn vilja leggja inn pöntun þá er bara um að gera skrifa í athugasemdir og við höfum samband.
Heyrst hefur að veiðin hér á Rockall sé búin og menn farnir að líta á "gráa svæðið" sem næsta viðkomustað, en ætla ég alls ekki selja það dýrara en ég stal því og fáið þið þetta algjörlega frítt. Eru menn orðnir "desperate" og heyrist muldrað í mörgum "we have to kill something"!!!
Þar til næst.
Jón Kj.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.3.2009 | 15:42
Jæææjja
Þetta er allt saman samsæri (samsæer) punktur.
13-1 hjá mínum mönnum í síðustu þrem leikjum sem er að sjálfsögðu Liverpool, gott mál það.
Uppþvottavélin staldraði stutt við.
Bræla á miðunum.
Ísland tapaði fyrir Færeyingum (kokkurinn ánægður).
Sjónvarpskúlan biluð.
Óvíst hvenær næstu fréttir koma þar sem umferð á síðuna hefur stóraukist erlendis frá, er Noregur þar efst á blaði og fylgjast grannt með.
Þar til næst (ef það verður).
Bkv. Jón Kj.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.3.2009 | 04:23
Á Eskifjörð stefnum vér
Þá erum við komnir á landstím, hífðum við á fimmtudagskvöld og fylltum á það sem vantaði, var kominn kaldaskítur er híft var og vinnuaðstæður all erfiðar úti á dekki þar sem Ægir sýndi okkur mátt sinn hvað eftir annað. Eftir að búið var að gera sjóklárt og menn komnir inn hverjum sjóblautari eftir hvorum öðrum var fjölmennt í sturtu til að skola mesta saltið af sér. Skrúbbuðu menn bakið á hvorum öðrum og voru hin ýmsu mál skeggrædd á meðan. Barst talið m.a. að sjóböðum, sem virðast vera "inni" í dag, komumst við að því að þau eru bæði sál og líkama mjög holl, stunda menn þessi sjóböð m.a. í Nauthólsvík, en teljum við að þau séu mun hollari hér úti á rúmsjó en í fjöruborðinu.
En að allt öðru, er hér ein mynd að Guðrúnu Þorkelsdóttur, ex Jón Kjartansson, nú Lundey NS, sem ég tók árið 2006. Þarna vorum við á leið í land með barmafullt skip af kolmunna sem við fengum á Rockall. Mættum við henni og lánuðum þeim eitt stykki poka á trollið svona til vara vara ef illa færi hjá þeim. Er það eitt vandamálið þegar kolmunninn er veiddur hér í suðrænum sjó og verið er að hífa, að sprengja ekki pokann. Þarf mikla lægni við að ná honum réttum upp en ekki upp á endann. Þess má til gamans geta að allmargir Húsvíkingar starfa þarna um borð og hafa þeir m.a. hertekið vélarrúmið. Er þar er hæðst ráðandi Börkur Kjartansson fyrrum vinnufélagi minn, Guðlaugur Rúnar skólafélagi minn úr Vélskólanum, sjálfur heildsalinn Guðmundur Vilhjálmsson og síðast en ekki síst, gamli reynsluboltinn, Júlíus Jónasson, var hann lengi vel vélstjóri á Björgu Jónsdóttur ÞH. Sendum þeim og allri áhöfninni bestu kveðjur.
Einn úr áhöfninni á Lundey var um borð (nánast pottþéttur:)) er þessi mynd var tekin, spyr ég nú, hver er maðurinn?
Kv. Jón Kj.
SVH
Bloggar | Breytt 23.3.2009 kl. 04:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.3.2009 | 07:19
Loksins smá fréttir af aflabrögðum...
...og kominn tími til. Erum búnir að snara um 1.650.000 kg. af svartkjafti um borð og hefur bara gengið vel, fyrir utan smá rifrildi á trolli, var þá ekkert annað en að slá hinu undir og hefur fiskað ágætlega í það. Veðrið hefur leikið við okkur þennan túrinn, er það eitthvað annað en menn eiga að venjast, á þessum stað og þessum árstíma, er þetta sannkallað veðrahelvíti þar sem hver lægðin á eftir annarri fer hér hjá. Getur þetta tekið á taugar manna svo um munar en er það nú aldeilis ekki hjá okkur á Sulla. Sævar átti afmæli á þriðjudaginn og óskum við áhöfnin honum til hamingju með daginn, tökum ekki fram hversu gamall hann var.
Læt ég fylgja hérna eina mynd að afmælisbarninu, var kokkurinn með eitt af því betra sem maður fær í matinn, það er mauksoðið íslenskt fé með Indverja og svo að sjálfsögðu kjötsúpu, var þessu gerð góð skil.
Annars eru allir hér með besta hesta heilsu, þangað til næst.
kv. Jón Kj.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 20:19
Komnir á miðin og búið að kasta
Góðan og blessaðan daginn netverjar góðir, vorum að renna trollinu í hafið eftir tveggja sólarhringa stím frá Eskifirði, virðist kolmunninn vera að færa sig norðar, erum við nú staddir 550 sjómílur frá Eskifirði en vorum um og yfir 700 mílur frá firðinum í fyrsta túrnum eftir að við hættum gulldepluveiðunum.
Þeir félagar Bjarni, Sigurrjón, Hjálmar yfirstýrimaður og Böbbi vélstjóri fóru í land eftir síðasta túr og komu að sjálfsögðu ferskir menn í þeirra stað, Sævar sleðakall, Óðinn ferðalangur, Stebbi Ghana búi og Þorsteinn maskínustjóri. Má geta þess að Óðinn fór tvisvar sinnum yfir á Búðareyri í fríinu sínu og Stéfán er víst kominn undan Ghana manni sem flúði undan þrældómi fyrir 200 árum og endaði á Djúpavogi. Kokkurinn fékk nýja uppþvottavél í inniverunni og hafa allir vélstjórarnir klórað sér í hausnum yfir því hvernig eigi að tengja þessa ofursúpermaskínu, því enginn tengill er nógu öflugur fyrir slíka vél í skipinu, hafa maskínustjórar eftir miklar pælingar fundið út að leggja þurfi nýjan stofn, allt frá rafala og upp í eldhús, og þýðir ekkert minna en 100 Amper. Guðni yfirkjölsvín er með Dodda í ströngu aðhaldi og lætur hann hlaupa fram og til baka um allt skip, fréttist það að Doddi hafi verið að pulsa sig heldur betur upp á Bæjarins Besta er hann var í borg óttans í fríinu.
Heitasta æðið hér um borð þessa stundina er facebook-in og eru menn á öllum stundum að eignast nýja og nýja vini, er maður ekki maður með mönnum nema fá sér svo sem eitt andlit, og játar undirritaður hér og nú að hann sé kominn með eitt slíkt, hvað sem hann ætlar að gera svo við það.
Hér er Kapteinn Grétar að skoða fésbókina sína og má til gamans geta að hann á orðið nokkur hundruð vini enda vinsæll maður þar á ferð.
Hefur Stéfán Ghana búi lýst undrun sinni á allri þessari vitleysu sem fésbókin er, er þá bara spurning hvort ekki eigi að stofna félagasamtök á facebook, "Stéfán Þór Kjartansson á facebook". Væri gaman að fá svo sem nokkur komment um það.
Þangað til næst, strákarnir á facebook-inu, og Jóni Kjartans.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2009 | 02:15
Í landi.....
...með morgninum. Þá er þessi túr að enda kominn, höfum við fengið alveg fínasta veður á leiðinni og gengið vel. Lestarstjóri segir að ríflega 2000 tonn hafi runnið í lestarnar í þessum túrnum og þetta hafi verið eðal kolmunni sem hafi fengist, hafa sumir hér um borð verkað kolmunnann eins og harðfisk og borið þar með björg í bú, bragðast hann eins og besta sælgæti.
Mikil spenna ríkti hér á miðvikudagskvöld er Arsenal heimsótti Roma heim í Meistaradeildinni, ekki varð nú spennan minni er ljóst var að það færi í vítaspyrnukeppni. Var þetta hin besta skemmtun að horfa á og voru Arsenalaðdáendur hér kampakátir með sína menn eftir þessa æsi spennandi keppni.
Kv. Jón Kj.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2009 | 03:31
Ágætis veiði hjá köllunum
Já það var eins og við manninn mælt, er þeir félagar Kári og Ægir fóru að sýna okkur smá miskunn eftir mikinn brælublús um helgina, fór Korlákur svartkjaftur að gefa sig, var ákveðið að nú skildi fram sækja og vera snöggir að safna í bátinn, hafa starfsmenn í brú staðið sig með ágætum í þeim málum. Liggja 2000 tonn í valnum eftir þennan sóknarleik, má líkja þessu við leik minna manna, Liverpool, er þeir fengu Real Madrid í heimsókn í gærkvöldi, var það algjör smánum þar á ferð. Efast ég ekki um að risið sé býsna lágt, ef það er þá eitthvað, á Madrídarbúum þessa stundina, verður gaman að heyra hvað meistari Kristinn R. Ólafsson les úr spænsku pressunni.
Þangað til næst, verið þið sæl og blessuð.
Jón Kj.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.3.2009 | 19:49
"Hvað er að frétta?"
Já hjá okkur Sulla strákum er akkúrat ekkert að frétta þessa stundina, algjört núll og nix, ja ekki nema að Arsenal vann í dag og voru 2/3 hlutar starfsmanna á stjórnpalli, þ.e.a.s. kapteinn Grétar og Hjálmar yfirstýrimaður, mjög ánægðir með sína menn. ManUtd. menn hér um borð ganga um á skýjum eftir leik þeirra manna í gær en við Liverpool menn erum orðnir heldur spenntir eftir leik okkar manna við spanjólana frá Madrid sem fer fram á þriðjudag.
Brælu skítur er búinn að vera í dag og gær og höfum við því haft hægt um okkur þennan tíma, menn hafa reynt að skorða sig á hinum ýmsum stöðum til að rúlla ekki upp og niður síður, fram og til baka, sást til sumra vera komna ofan í skúffu undir koju hjá sér, aðrir tróðu sér í skápana í stakkageymslunni og sá sem þetta ritar lét straffa sig niður í tölvustólinn svo hann gæti ritað einhver orð hér á síðuna. Erum við komnir með 700 tonns eftir að híft var í gærmorgun.
Upp á ölduna lyftir hann sér...
...og niður aftur í öldudalinn...
..réttir sig af og er klár í næstu törn.
En svona er þetta búið að vera hjá okkur um helgina og vonandi fer hann Ægir félagi okkar að sýna smá miskunn svo við getum nú haldið áfram að fiska og aflað smá gjaldeyri.
Kv. Jón Kj.
SVH
Bloggar | Breytt 9.3.2009 kl. 03:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2009 | 05:38
Hver er manneskjan?
Þá erum við búnir að láta trollið fara í annað sinn í hafið, köstuðum seinnipart fimmtudags og var híft aftur í gærmorgun, var þá komið skítaveður og bræla, pumpuðum 400 tonnum af svartkjaftinum um borð. Var Ægir ekki fallegur á að líta í gærdag og höfðum við því hægt um okkur, en er kvölda fór í gærkvöldi fór hann að sína okkur smá miskunn og var ákveðið að trollið skildi í hafið fara og erum við á toginu í þessum skrifuðu orðum. Tók ég stutt spjall við Hjálmar yfirstýrimann og tjáði hann að lítið væri um að vera, "bölvaður skakstur og lítil innkoma" en 3 neminn hafi verið rauður áðan en breytt sér svo aftur í fagurgrænan framsóknarlit og virðist líka hann vel.
En þá að allt allt öðru, eins og kunnugt er þá vorum við í slipp í Reykjavík s.l. haust og var nóg að gera í handraðanum þar við hinar ýmsu endurbætur og fleira. Var okkur vélaliðinu og Stéfáni stýrimanni boðið í stórfenglegt matarboð til yndislegra hjóna á höfuðborgarsvæðinu. Er frúin á heimilinu í miklu uppáhaldi hjá Stéfáni en hún hefur lesið sig inn í hug og hjarta okkar Íslendinga með sinni einskærri rödd á undanförnum áratugum.
Spyr ég nú, hvað heitir þessi ástsæla kona og hvaða þætti stýrir hún í útvarpinu?
Viljum við senda þeim skötuhjúum okkar bestu óskir og þökkum enn og aftur fyrir frábæran mat og yndislega kvöldstund í september sl.
Kv. Jón Kj.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.3.2009 | 05:28
"Óbyggðirnar kalla"
Þá er ritstjórinn aftur mættur til starfa eftir eins túrs frí sem var mjög kærkomið, og vill hann þakka aðstoðarritstjóra síðunnar fyrir vel unnin störf á meðan fríinu stóð. Við fórum út frá Eskifirði á þriðjudagskvöld eftir að hafa landað 2330 tonnum af svartkjaftinum og var svo einnig viðgerðarstopp eftir löndun og var því nóg að gera hjá maskínustjórum þessa inniveruna. Það er búið að vera þó nokkur veltingur á leiðinni og barasta skítabræla, en sem betur fer erum við á suðurleið í heitari sjó og fáum þetta í afturendann á okkur en ekki beint framan í nefið.
Það var fallegt um að lítast í Mývatnssveit er ritstjóri var þar á ferð, sunnan vindur, sól og frost. Eins skartaði hálendið sínu fegursta og nýtti maður sér það og smellti af nokkrum myndum á leiðinni.
Drottning íslenskra fjalla, sjálf Herðubreið, var stórfengleg að líta, hulin skýjatoppi.
Fjöllin sem eru í forgrunni eru svo Fremri-Grímsstaðanúpur.
Það er mikill snjór á hálendinu og hafa fjórfetlingar og önnur dýr úr litlu að moða, keyrði ritstjóri fram á þessa myndar hreindýrahjörð við Brúarháls, sum voru að kroppa í á meðan önnur lágu í makindum sínum og létu sig ekki trufla þótt stoppað væri og smellt af einni mynd.
Kv. Jón Kj.
SVH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Janúar 2012
- Janúar 2011
- Október 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Myndaalbúm
Tenglar
Önnur skip
- Aðalsteinn Jónsson SU
- Álsey VE
- Ásgrímur Haldórsson SF
- Birtingur
- Bjarni Ólafsson AK
- Börkur NK
- Faxi Re
- Guðmundur VE www.gudmundurve.net/blogg/
- Hákon EA
- Hoffell SU
- Huginn VE
- Ingunn AK 150
- Jóna Eðvalds SF
- Kap VE
- Lundey NS-14
- Margrét EA
- Sighvatur Bjarnason VE
- Þorsteinn ÞH360 www.blog.is/thorsteinnth
- Júpiter ÞH363 http://www.123.is/jubbinn.
Togarar
- Arnar HU1 www.123.is/arnarhu1
- Björgvin EA311 www.123.is/bjorgvinea
- Brimnes RE27 www.123.is/brimnes
- Guðmundur í Nesi RE13 www.gin.is
- Kleifaberg ÓF2 www.simnet.is/kleifaberg/
- Málmey SK1 www.hrappur.is/malmey/
- Vigri RE71 http://sjomenska.123.is/
- Örvar HU2 www.123.is/hu2.
Rannsóknarskip
- Árni Friðriksson RE200 www.123.is/arnif
Erlend skip
- Akamalik www.akamalik.mono.net/
- Christian i Grotinum
- Fagraberg FD
- Nordborg
- Skálaberg118 www.skalaberg118.dk/
- Sundaberg KG336 www.sundaberg.dk/
Aðrir áhugaverðir
- Grétar Rögnvarsson
- Guðmundur St Valdimarsson
- Hafþór Hreiðarsson www.123.is/skipamyndir
- Hilmar Snorrason
- Jón Páll Ásgeirsson
- 640 www.640.is
- Tobbi Villa
- Þorgeir Baldursson
Sveitarfélög
- Djúpivogur www.djupivogur.is
- Fjarðabyggð www.fjardabyggd.is
- Norðurþing www.nordurthing.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar